Enski boltinn

Chelsea aftur á sigurbraut

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Chelsea náði að koma sér aftur á beinu brautina í ensku úrvalsdeildinni með 2-0 sigri á Hull á útivelli í dag.

Hull byrjaði þó betur í leiknum en náði ekki að nýta sér meðbyrinn í fyrri hálfleik. Willian kom svo Chelsea yfir á 61. mínútu með góðu skoti og undirbúning Diego Costa.

Costa kom svo sjálfur Chelsea í 2-0 forystu með keimlíku mark. Hull náði aldrei að ógna forystu Chelsea að nokkru ráði eftir þetta.

Chelsea er nú í sjötta sæti deildarinnar með þrettán stig en Hull er í fimmtánda sæti deildarinnar með sjö stig. Hull hefur nú tapað þremur leikjum í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×