Erlent

Charlie Hebdo minnist þess að eitt ár er liðið frá árásinni á skrifstofur blaðsins

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sérstakt eintak af ádeilublaðinu Charlie Hebdo kom út í dag.
Sérstakt eintak af ádeilublaðinu Charlie Hebdo kom út í dag. Vísir/EPA
Franska háðsádeilublaðið Charlie Hebdo hefur gefið út sérblað til þess að minnast þess að eitt ár er liðið frá því að hryðjuverkamenn réðust inn á skrifstofur þess í París og hófu skothríð þann 7. janúar 2015.

Á forsíðu blaðsins sést skeggjaður maður sem táknar Guð með Kalishnikov-byssu ásamt textanum: „Eitt ár liðið - Árásarmaðurinn gengur enn laus.“

Ein milljón eintök af sérblaðinu voru gefin út í Frakklandi auk þess sem að þúsundir eintaka verða sendar til sölu fyrir utan Frakkland.

Sjá einnig: Hollande heiðrar þá sem féllu í Charlie Hebdo árásunum

Eitt ár er síðan bræðurnir Chérif og Saiud Kouachi réðust inn á skrifstofur Charlie Hebdo-blaðsins í austurhluta Parísarborgar þar sem þeir drápu tólf manns, þar af átta starfsmenn blaðsins.

Afsprengi al-Qaida á Arabíuskaga lýsti yfir ábyrgð vegna árásinnar en þetta var ekki í fyrsta sinn sem ráðist var á ritstjórnarskrifstofur skopmyndablaðsins umdeilda, árið 2011 var eldsprengju varpað á skrifstofur blaðsins sem varð til þess að skrifstofurnar voru fluttar.

Francois Hollande Frakklandsforseti afhjúpaði minningarplatta til minningar um fórnarlöm árásanna.Vísir/EPA
Teikningar eftir teiknara sem létust í árásinni í blaðinu

Í sérblaðinu eru meðal annars skopmyndir eftir þá fimm skopmyndarateiknara sem létu lífið í árásinni. Skopmyndateiknarinn Laurent Sourisseau, sem tók við ritstjórn blaðsins, skrifaði einnig leiðara þar sem hann fordæmdi ofsatrúarmenn sem misþyrma Kóraninum.

Sourissaeu slasaðist alvarlega í árásinni og var nær dauða en lífi. Fjármálastjóri blaðsins, Eric Portheult, sem slapp með því að fela sig undir skrifborði segir að starfsmenn blaðsins finnist þeir vera einir í baráttunni.

„Við erum alveg einir. Við vonuðumst til þess að aðrir myndu ganga til liðs við okkur með því að skapa háðsádeilu,“ sagði Portheult. „Enginn vill hjálpa okkur vegna þess að það er hættulegt. Menn geta dáið.“

Sjá einnig: Ritstjóri Charlie Hebdo: „Ég vil frekar deyja standandi en lifa á hnjánum“

Frakkar munu minnast þess að eitt ár er liðið frá árásunum en að auki réðust þrír byssumenn á stórmarkað á sama degi fyrir ári síðan þar sem 17 manns voru drepnir. Þann 10. janúar mun fara fram stór minningarathöfn á Place de la Republique, torgi í austurhluta París, sem varð að óformlegum minnisvarða um árásirnar.

Voru árásirnar á Charlie Hebdo og stórmarkaðinn þær fyrstu sem mörku ár hryðjuverkaárása í Frakklandi en minningarathafnirnar verða haldnar í skugga hryðjuverkaárásanna í París í nóvember síðastliðnum þar sem 130 manns létu lífið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×