Enski boltinn

Chamberlain missir líklega af öllu næsta tímabili

Anton Ingi Leifsson skrifar
Slæm tíðindi fyrir Liverpool.
Slæm tíðindi fyrir Liverpool. vísir/getty
Alex Oxlade-Chamberlain, miðjumaður Liverpool, mun missa af nánast öllu næsta tímabili vegna meiðsla sem hann hlaut á síðasta tímabili.

Þetta staðfesti Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, í samtali við fjölmiðla í dag en Chamberlain er enn að jafna sig eftir hné aðgerð.

Chamberlain meiddist í fyrri undanúrslitaleiknum gegn Roma Í Meistaradeildinni og fór af velli eftir átján mínútur. Síðar kom í ljós að hann sleit krossbönd.

Vonast var til að Chamberlain gæti komið eitthvað við sögu á næsta tímabili en nú er staðan sú að það er ólíklegt að Englendingurinn spili eitthvað á næsta tímabili.

Liverpool hefur þó fleiri spil á hendi á þessu tímabili en á því síðasta hvað varðar miðjumenn því liðið hefur fengið Naby Keita og Fabinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×