Viðskipti erlent

CES 2017: Snjallrúm og snjallísskápur

Samúel Karl Ólason skrifar
InstaView ísskápurinn og 360 smart bed.
InstaView ísskápurinn og 360 smart bed. Vísir/EPA
CES ráðstefnan, eða Consumer Electronics Show, stendur nú yfir í Las Vegas og keppast tæknifyrirtæki um að kynna nýjustu vörur sínar. Það eru margar vörur sem vekja athygli en sumar meira en aðrar.

Þar á meðal var snjallrúm fyrirtækisins Sleep Number, sem kallast 360 smart bed.

Í rúminu er hitari, sem hitar fætur fólks þegar það fer að sofa og undir rúminu eru ljós sem kvikna þegar staðið er upp á næturnar. Þá laðar rúmið sér að breyttum stellingum þess sem sefur í því og breyta þéttleika dýnunnar eftir því sem hentar notendum.

Þar að auki skynjar rúmið þegar fólk byrjar að hrjóta og lyftir höfðinu á því til að koma í veg fyrir hroturnar. 

Sleep Number hefur ekki sagt hvenær sala á rúmunum hefst að öðru leyti en að það verði á fyrri hluta ársins. Þá liggja ekki upplýsingar fyrir um verð. Þó má gera ráð fyrir að rúmið verði ekki ódýrt. 

Fyrirtækið LG sýndi snjallísskápinn sinn InstaView á IFA ráðstefnunni í Þýskalandi í október, án þess að láta mikið fara fyrir honum, en nú var hann kynntur fyrir alvöru. Á annarri hurð ísskápsins er snertiskjár sem keyrir á WebOS stýrikerfi LG og notast vaið Alexa, raddstýringu Amazon.

Á snertiskjánum er hægt að fylgjast með þeim matvörum sem eru í ísskápnum og hvenær þær renna út. Þá er einnig hægt að versla á netinu á skjánum og ýmislegt annað. Sé hins vegar bankað tvisvar sinnum á skjáinn verður hann gegnsær og eigendur geta virt fyrir sér hvað sé í boði þar inni án þess að missa kalt loft útúr honum.

CES ráðstefnan hefst í raun formlega í dag, en þrátt fyrir það er þegar búið að kynna fjöldan allan af vörum á ráðstefnunni. Þar á meðal eru sjónvörp, snjallúr og ýmislegt annað.

Hægt er að fylgjast með nýjustu vendingum hér á vef CNET og hér á vef Engadget. Þá má sjá kynningar og fleira á Youtuberás ráðstefnunnar. Þá mun Vísir halda áfram að fjalla um áhugaverðar kynningar á CES 2017.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×