Fótbolti

Cech spilar ekki meira | Lítur illa út með Terry

Cech fer þjáður af velli.
Cech fer þjáður af velli. vísir/getty
Chelsea varð fyrir miklu áfalli í kvöld er markvörður þeirra, Petr Cech, meiddist illa á öxl. Hann mun ekki spila meira á tímabilinu og tímabilinu gæti einnig verið lokið hjá John Terry.

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, staðfesti eftir markalausa jafnteflið gegn Atletico að Cech væri kominn í sumarfrí. Hinn 41 árs gamli Mark Schwarzer þarf því að klára tímabilið í marki Chelsea en hann stóð sig vel í kvöld.

Terry meiddist á ökkla og útlitið ekki gott með framhaldið hjá honum heldur.

Það er allt undir hjá Chelsea um helgina er liðið sækir Liverpool heim og ljóst að liðið mætir laskað á Anfield.

Terry lýkur hér keppni í kvöld.vísir/getty

Tengdar fréttir

Steindautt jafntefli hjá Atletico og Chelsea

Það er allt galopið fyrir seinni leik Atletico Madrid og Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir að liðin gerðu markalaust jafntefli á Spáni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×