Enski boltinn

Cech mætir gömlu félögunum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Arsenal er loks komið með heimsklassamarkvörð, en Petr Cech kostaði liðið ekki nema tíu milljónir punda.
Arsenal er loks komið með heimsklassamarkvörð, en Petr Cech kostaði liðið ekki nema tíu milljónir punda. vísir/getty
Eins mikið og Íslendingar kvarta yfir veðrinu og köldu sumri leyfa áhugamenn um enska boltann sér að hlakka til vetrarins þegar það hentar. Það á þá oftast við þegar enski boltinn er að hefjast og verður generalprufan á morgun, sunnudag, þegar Chelsea og Arsenal mætast í leiknum um Samfélagsskjöldinn.

Bæði lið hafa styrkt sig vel fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea er ansi líklegt til að verja Englandsmeistaratitilinn en Arsenal hefur ekki verið líklegra til að standa uppi með þann stóra í háa herrans tíð.

Stærstu kaup tímabilsins hjá Arsenal voru ekkert svo stór í milljónum punda talið þegar liðið fékk Petr Cech frá Chelsea fyrir tíu milljónir punda. Auðvitað er það rosalega mikill peningur en bara klink í heimi enska boltans eins og hann er í dag.

Þessi kaup gætu þó verið þau stærstu hjá Arsenal og þau mikilvægustu í mörg ár. Liðið hefur verið án alvöru markvarðar síðan Jen Lehmann kvaddi og sést það alveg á árangri liðsins.

Arsenal-menn hafa reynt að halda tryggð við Pólverjann Wojciech Szczesny og aðra meðaljóna sem varið hafa mark Lundúnaliðsins undanfarin ár en niðurstaðan var átta titlalaus ár áður en tveir bikarmeistaratitlar unnust í röð.

Nú er kominn alvöru markvörður. Sigurvegari. Maður sem hefur unnið ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum (þrisvar sem aðalmarkvörður), bikarinn fjórum sinnum og Meistaradeildina. Það sem meira er, hann var algjör lykilmaður á bak við alla þessa titla og fór langt með að vinna Meistaradeildina fyrir Chelsea árið 2012.

José Mourinho veðjaði á Thibaut Courtois og er það gott og blessað enda Belginn magnaður og mun yngri en Cech. En Tékkinn er langt frá því að vera búinn og getur staðið vaktina í marki Arsenal næstu árin.

Cech er markvörður sem vinnur stig og leiki. Leiki sem skila titlum. Það er það sem Arsenal hefur vantað í langan tíma og fá aðdáendur Arsenal og enska boltans kannski að sjá strax í fyrsta leik hvers virði hann er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×