Fótbolti

Cech: Við fengum ekki á okkur fimm mörk þannig við eigum enn þá séns

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Petr Cech gefst ekki upp.
Petr Cech gefst ekki upp. vísir/getty
Arsenal er svo gott sem fallið úr keppni í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir 2-0 tap gegn Evrópumeisturum Barcelona á heimavelli sínum í Lundúnum í gær.

Lionel Messi skoraði bæði mörkin fyrir Barcelona í seinni hálfleik, en Arsenal fékk svo sannarlega sín færi til að komast yfir í leiknum.

Skytturnar þurfa að vinna þriggja marka sigur á Nývangi til að komast áfram sem þykir ólíklegt, en Börsungar hafa ekki tapað leik, hvorki heima né úti, síðan í byrjun október á síðasta ári.

Þetta yrði sjötta árið í röð sem Arsenal fellur úr leik í 16 liða úrslitunum en það komst síðast í átta liða úrslitin 2010 og í undanúrslitin árið áður.



Þrátt fyrir erfiða stöðu gefur Petr Cech, markvörður Arsenal, ekkert eftir í baráttunni þrátt fyrir að Arsene Wenger, knattspyrnustjóri liðsins, segir Börsunga 95 prósent örugga áfram.

„Við erum enn á lífi,“ segir Cech í viðtali á heimasíðu Arsenal. „Það er ekki eins og við fengum á okkur fimm mörk. Seinna markið gerði möguleika okkar minni en þetta er ekki búið enn þá.“

„Ef við spilum eins og við gerðum í fyrri leiknum og bætum okkur fyrir framan markið eigum við séns á að búa til dramatík úr þessu“

„Þegar maður er að spila gegn einu líklegasta liðinu til að vinna keppnina verður maður að nýta þau færi sem maður fær. Það er sárt að tapa en það er engin skömm að tapa gegn einum besta fótboltamanni sögunnar,“ segir Petr Cech.


Tengdar fréttir

Fullkomið hjá spænsku liðunum í Evrópukeppnunum

Barcelona er í frábærum málum í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir tveggja marka sigur í fyrri leiknum á heimavelli Arsenal í gær. Barca er aftur á móti langt frá því að vera eina spænska liðið sem er á leið áfram í Evrópukeppninni.

Wenger: Barnalegt hjá okkur

Arsene Wenger segir að Barcelona sé frábært lið en það megi ekki gefa því mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×