Viðskipti innlent

CCEP lýkur yfirtöku á Vífilfellli

Sæunn Gísladóttir skrifar
Carlos Cruz, forstjóri CCEP á Íslandi og fyrrverandi forstjóri Vífilfells.
Carlos Cruz, forstjóri CCEP á Íslandi og fyrrverandi forstjóri Vífilfells. Mynd/Vífilfell
Coca-Cola European Partners (CCEP), stærsta sjálfstæða átöppunarfyrirtæki Coca-Cola í heiminum og leiðandi fyrirtæki á markaði með neytendavörur í Evrópu, tilkynnti í dag að það hefði gengið frá yfirtöku á Vífilfelli, sem framleiðir og dreifir Coca-Cola á Íslandi. CCEP er nú með starfsemi í 13 löndum í Vestur-Evrópu.

Fram kemur í tilkynningu að CCEP framleiðir, dreifir og markaðssetur nokkur af vinsælustu drykkjarvörumerkjum heims til yfir 300 milljón neytenda í Vestur-Evrópu. Hjá fyrirtækinu starfa um 25 þúsund manns og voru áætlaðar tekjur fyrir árið 2015 um 11 milljarðar evra. (eða 1.500 milljarðar kr.)

Vífilfell er eitt stærsta fyrirtæki á Íslandi í neytendavörum og er leiðandi á sviði gosdrykkja og bjórs. Velta þess er um 10,8 milljarðar króna (78 milljónir evra). Starfsemi fyrirtækisins nær til allra landshluta á Íslandi og  þjónustar Vífilfell um 2.300 fyrirtæki um land allt, með breiðu úrvali vinsælla vörumerkja á borð við Coca-Cola, Fanta, Sprite, Trópí, Toppur, Powerade, próteindrykkinn Hámark og bjórtegundirnar Víking og Thule.

Vífilfell var stofnað sem fjölskyldufyrirtæki árið 1942 af Birni Ólafssyni ráðherra. Höfuðstöðvar þess hafa alla tíð verið í Reykjavík og eru starfsmenn Vífilfells nú um 230 talsins.


Tengdar fréttir

Tæplega 60 prósent tekna koma af sölu gosdrykkja

Carlos Cruz hefur verið forstjóri Vífilfells í tæpt ár og ætlar að vera hér í þrjú til fjögur ár. Hann segir fyrirtækið vel fjármagnað. Tæp sextíu prósent af tekjum Vífilfells koma af sölu gosdrykkja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×