Enski boltinn

Carrick framlengir við Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, virðist hafa trú á Michael Carrick því miðjumaðurinn er búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Nýi samningurinn er aðeins til eins árs en næsta tímabil verður ellefta tímabil Carrick í rauða búningnum en hann kom til félagsins frá Tottenham.

Carrick hefur unnið ensku deildina fimm sinnum með United ásamt því að vinna líka Meistaradeildina, enska bikarinn, deildabikarinn og heimsmeistarakeppni félagsliða.

„Þetta frábæra félag hefur verið stór hluti af mínu lífi síðustu 10 ár og það er frábært að geta haldið þessari vegferð áfram,“ sagði Carrick.

„Það er líka frábært að fá tækifæri til þess að spila fyrir Mourinho sem hefur náð geggjuðum árangri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×