Fótbolti

Carrick, Evans og Rafael tæpir fyrir leikinn gegn Real Sociead

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jonny Evans í leik með United
Jonny Evans í leik með United nordicphotos/getty
Michael Carrick, Jonny Evans og Rafael, leikmenn Manchester United, eru allir tæpir fyrir leikinn gegn Real Sociead, í Meistaradeild Evrópu sem fram fer annað kvöld á Spáni.

Jonny Evans og Rafael fóru báðir af velli gegn Fulham á laugardaginn í ensku úrvalsdeildinni er United vann 3-1.

Carrick var meiddur fyrir leikinn á laugardaginn og verður líklega ekki með í Meistaradeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×