Körfubolti

Carmelo fundaði með Knicks og Lakers

Vísir/Getty
Carmelo Anthony er í óða önn þessa daganna að skoða sín mál og ákveða með hvaða liði hann spilar með í NBA-deildinni á næstu leiktíð.

Í gær fundaði Carmelo með bæði LA Lakers og New York Knicks og eru þau bæði talin hafa boðið honum virkilega góðan samning.

LA Lakers er talið vera tilbúið að bjóða Carmelo fjögurra ára samning að virði 95 milljónir dollara sem jafngildir rúmum tíu milljörðum íslenskra króna.

Knicks geta þó boðið honum enn betur, en félagið getur boðið honum samning sem er til fimm ára og hljóðar uppá 129 milljónir dollara.

Enginn skyldi þó útiloka að Chicago Bulls klófesti Carmelo, en hann fundaði einnig með þeim í síðustu viku.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×