Körfubolti

Carmelo Anthony með misjafna takta í fótbolta | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mynd/Twitter-síða Gareth Bale
Carmelo Anthony, stjörnuframherji New York Knicks, mætti á æfingu hjá Real Madrid á dögunum en félagið er þessa dagana í æfingarferð um Bandaríkin fyrir tímabilið sem er framundan.

Á æfingunni heilsaði hann upp á leikmenn Real Madrid og virtist honum koma vel við Alvaro Arbeloa, Xabi Alonso og Gareth Bale.

Anthony mætti með vini sínum, Dontaye Draper, sem lék áður fyrr með körfuboltaliði Real Madrid og syni sínum og sýndi misgóða takta með fótbolta en myndband af heimsókn Anthony má sjá hér fyrir neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×