Erlent

Carlsen varði heimsmeistaratitilinn

Bjarki Ármannsson skrifar
Þetta er annar heimsmeistaratitill hins 23 ára Carlsen.
Þetta er annar heimsmeistaratitill hins 23 ára Carlsen. Vísir/Getty
Norðmaðurinn Magnus Carlsen varði í dag heimsmeistaratitil sinn í skák. Eftir sigur á Indverjanum Viswanathan Anand var Carlsen kominn með sex og hálfan vinning gegn fjórum og hálfum og orðið ómögulegt fyrir Anand að ná honum.

Þetta er annar heimsmeistaratitill hins 23 ára Carlsen, en hann hefur náð fleiri ELO-stigum en nokkur skákmaður í sögunni, eða 2882 stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×