Glamour

Cara Delevingne og Pharrell sungu saman fyrir Lagerfeld

Pharrell og Cara saman á sviðinu í New York í gærkvöldi.
Pharrell og Cara saman á sviðinu í New York í gærkvöldi. Glamour/Getty
Gleðin var við völd í partý sem Karl Lagerfeld og Chanel stóðu fyrir í New York í gærkvöldi. Partýið nefndist CHANEL Paris-Salzburg 2014/15 Metiers d'Art Collection.

Söngkonan Beyoncé, ritstjórinn Anna Wintour og leikkonan Dakota Johnson voru meðal gesta.

Hápunktur kvöldins var þó þegar sjálfur Pharrell Williams steig á stokk ásamt fyrirsætunni Cöru Delevingne, sem var að þreyta frumraun sína sem söngkona. Bæði eru þau stjörnur tískustuttmyndar tengd línunni sem Karl Lagefeld sjálfur sá um að leikstýra.

Stuttmyndina, sem heitir Reincarnation, má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

 



Karl Lagerfeld og Beyonce
Laura Love, Harley Viera-Newton, Alexa Chung og Dakota Johnson
Julianne Moore
Vanessa Paradis





×