Glamour

Cara Delevingne fyrir Saint Laurent

Ritstjórn skrifar
skjáskot
Franska tískhúsið Saint Laurent fékk bresku fyrirsætuna Cöru Delevingne til að sitja fyrir í herferðinni fyrir svokallaðri Parísarlínu tískuhússins. 

Það var listrænn stjórnandi merkisins Hedi Slimane sem sjálfur tók myndirnar af Cöru sem eru í svarthvítu og í anda línunnar þar sem andi níunda áratugarins svífur yfir. 

Cara hefur dregið sig að mestu úr fyrirsætustörfum á meðan hún hefur verið að einbeita sér að leiklistinni og kemur þetta því nokkuð á óvart. Miklar sögusagnir hafa verið uppi um línan sé sú síðasta frá Slimane fyrir Saint Laurent og þykir valið á Cöru sem fyrirsætu vera enn ein vísbendingin þess efnis. Það kemur í ljós ... 

En herferðin er flott - hér eru myndirnar. 






×