Bíó og sjónvarp

Captain America gengur í skrokk á Iron Man

Samúel Karl Ólason skrifar
Captain America og nokkrar vinveittar ofurhetjur.
Captain America og nokkrar vinveittar ofurhetjur.
Captain America: Civil War er næsta myndin úr kvikmyndaheimi Marvel. Fyrsta stikla myndarinnar hefur nú verið birt, en myndin verður frumsýnd þann sjötta maí næstkomandi. Sem áður mun fjöldi ofurhetja bregða fyrir en að þessu sinni eru svokallaðar góðar ofurhetjur að berjast við aðrar ofurhetjur.

Fylkingarnar tvær eru leiddar af Steve Rodgers, eða Captein America annarsvegar og Tony Stark, eða Iron Man hins vegar.

Hér má sjá yfirlit yfir kvikmyndaheim Marvel sem og þáttaraðir þeirra sem gerðar eru í samstarfi við Netflix.Vísir/GraphicNews
Nokkrar ofurhetjur munu sjást í fyrsta sinn eins og Black Panter og Spiderman. Spiderman hefur verið í eigu FOX og er þetta í fyrsta sinn sem Spiderman birtist í Marvel kvikmyndaheiminum eftir að FOX og Disney náðu samkomulagi um málið.

Civil War
er þó alls ekki eina ofurhetjumyndin sem kemur út á næsta ári. Einnig má þar nefna Doctor Strange, Batman V Superman: Dawn of Justice, X-Men Apocalypse, Deadpool og Suicide Squad.

Í stiklunni sem sjá má hér að neðan virðist sem að samband Captain America við æskuvin sinn Bucky, eða The Winter Soldier, muni leiða til þess að meðlimir The Avengers skiptist upp í hópa og deili sín á milli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×