Sport

Canseco vonast eftir því að halda puttanum

Myndin sem Canseco birti á Twitter.
Myndin sem Canseco birti á Twitter.
Hafnaboltastjarnan sem skaut af sér fingurinn er á batavegi og vonast eftir því að geta haldið löngutöng.

Jose Canseco tókst að skjóta nánast af sér löngutöng þegar hann var að þrífa skammbyssuna sína. Hann gleymdi því að það væri enn skot í byssunni. Puttinn fór nánast af er skotið fór úr byssunni. Reynt var að festa puttann aftur á með aðgerð og tíminn verður að leiða í ljós hvort það dugi til. Ef ekki þá þarf að fjarlægja hann.

Hann náði ekkert að sofa eftir aðgerðina og birti mynd af sér á Twitter þar sem mátti sjá ástandið á honum. Blessunarlega á hann góða konu sem hlúði greinilega vel að honum.

Canseco er með betri leikmönnum MLB-deildarinnar á seinni árum en eins og flestir á hans tíma var hann sterabúnt og viðurkenndi það í ævisögu sinni sem kom út fyrir níu árum síðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×