Viðskipti erlent

Camel fer upp að hlið Marlboro

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Camel frá Reynolds American og Newport frá Lorillard hlið við hlið í tóbakshillu.
Camel frá Reynolds American og Newport frá Lorillard hlið við hlið í tóbakshillu. Fréttablaðið/AP
Eftir samkomulag um kaup Reynolds American Inc. á Lorillard Inc. fyrir 25 milljarða Bandaríkjadala verður fyrrnefnda fyrirtækið næststærsti tóbaksframleiðandi Bandaríkjanna á eftir Altria, sem meðal annars framleiðir Marlboro-sígarettur. Kaupverðið samsvarar yfir 2.850 milljörðum íslenskra króna.

Reynolds American framleiðir meðal annars Camel-sígarettur, en meðal framleiðsluvarnings Lorillard eru Newport-sígarettur.

Með kaupunum er einnig sagður verða til risi á sviði mentólsígarettna sem hafa notið vaxandi vinsælda á meðan almennt hefur dregið úr reykingum. Sameinað fyrirtæki er þannig sagt hafa búið sér til andrými á meðan reykingafólki fækkar.

Þá breytast valdahlutföll á sígarettumarkaði í Bandaríkjunum því samhliða viðskiptunum kaupir breski tóbaksframleiðandinn Imperial Tobacco önnur merki, svo sem Kool og Winston.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×