Camby allt annað en sáttur með að vera skipt til Portland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2010 23:30 Marcus Camby. Mynd/AFP
NBA-liðin Los Angeles Clippers og Portland Trail Blazers hafa komið sér saman um að skipta á leikmönnum. Marcus Camby fer Portland í staðinn fyrir framherjann Travis Outlaw og bakvörðinn Steve Blake. Marcus Camby frétti af skiptunum þegar umboðsmaður hans hringdi í hann þegar Camby var út að borða með öllu Los Angeles Clippers liðinu. Camby stóð umsvifalaust upp úr sæti sínu og strunsaði út. „Honum líkaði vel við Clippers-liðið og félagið. Hann er hrifinn af LA og konan hans var ánægð í Los Angeles. Hann er svo sannarlega ekki ánægður með þetta," sagði heimildarmaður Marc J. Spears í frétt hans á Yahoo.com. Travis Outlaw er 25 ára gamall en hann fótbrotnaði það illa í vetur að það er óttast um framtíð hans í boltanum. Blake er 29 ára gamall og var með 7,6 stig og 4,0 stoðsendingar að meðaltali með Portland. „Allir strákarnir í liðinu eru ósáttir af því að besta varnarmanni liðsins var skipt fyrir varaleikstjórnanda og pening," hefur Spears eftir einum leikmanni Clippers liðsins. Marcus Camby er 35 ára gamall en hann er með 7,7 stig og 12,1 frákast að meðaltali með Los Angeles Clippers í vetur. Hann er á sínu síðasta ári í samningi sínum. Þetta er í fjórða sinn sem hann fer í skiptum milli liða. Hann fór frá Toronto Raptors til New York Knicks 1998, frá New York Knicks til Denver Nuggets 2002 og svo frá Denver Nuggets til Clippers 2008.
NBA Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sjá meira