Enski boltinn

Cambiasso skrifaði undir hjá nýliðum Leicester

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Þessir mætast á ný í vetur.
Þessir mætast á ný í vetur. Vísir/Getty
Fyrrum argentínski landsliðsmaðurinn Esteban Cambassio skrifaði undir eins árs samning hjá Leicester City í gær en hann kemur til liðsins á frjálsri sölu frá Inter eftir að samningur hans rann út í vor.

Cambiasso sem er 34 árs gamall hefur leikið með Real Madrid og Inter á tíma sínum í Evrópu. Hann stoppaði stutt hjá Real Madrid, lék aðeins tvö ár þar en varð spænskur meistari og lék 42 leiki fyrir félagið.

Eftir dvölina hjá Real færði hann sig yfir til Ítalíu en þar varð hann fimm sinnum ítalskur meistari með Inter ásamt því að vinna Meistaradeildina á tíu árum hjá ítalska stórveldinu.

Ljóst er að um gríðarlegan liðsstyrk er að ræða fyrir nýliðanna í ensku úrvalsdeildinni en Cambiasso hefur leikið 52 landsleiki fyrir hönd Argentínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×