Tíska og hönnun

Calvin Klein-undirfataæðið til landsins

Ása Ninna Pétursdóttir, eigandi GK og Suit, er spennt fyrir komu Calvin Klein í búðina.
Ása Ninna Pétursdóttir, eigandi GK og Suit, er spennt fyrir komu Calvin Klein í búðina.
„Þetta er mjög spennandi en við heilluðumst af undirfötunum á tískuvikunni í Kaupmannahöfn,“ segir Ása Ninna Pétursdóttir, eigandi búðarinnar GK og Suit, en hún ætlar að selja fatamerkið fræga Calvin Klein í búðum sínum.

Um er að ræða undirfötin, gallabuxnamerkið og fylgihluti frá hönnuðinum vinsæla sem kom einmitt hingað til lands í tengslum við HönnunarMars á þessu ári og hélt erindi.

„Við höfum sjaldan verið svona spennt fyrir nýju merki þar sem allar línurnar voru svo fallegar og ættu að henta svo breiðum hópi. Verðið kom skemmtilega á óvart,“ segir Ása.

Undirfatnaðurinn hefur fengið uppreisn æru upp á síðkastið þar sem auglýsingaherferð fyrirtækisins sem nefnist #mycalvins hefur tekist það vel að þúsundir hafa merkt myndir af sér í Calvin Klein-undirfötum á Twitter og Instagram. 

Hægt er að skoða myndaflauminn sem berst hvaðanæva að úr heiminum á heimasíðu Calvin Klein.

Þúsundir manna út um allan heim deila myndum af sér í Calvin Klein- nærfatnaði og merkja þær #mycalvins á samskiptamiðlum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×