Lífið

Calvin Harris selur slotið: Hús sem alla dreymir um að eiga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Calvin Harris og Taylor Swift eru par.
Calvin Harris og Taylor Swift eru par.
Tónlistarmaðurinn Calvin Harris hefur sett hús sitt á sölu í Los Angeles og eigin metin á 10 milljónir dollara eða því sem samsvarar rúmlega 1,2 milljörðum íslenskra króna.

Harris er kærasti Taylor Swift sem er ein allra þekktasta söngkonan í heiminum í dag. Húsið er fjögurra herbergja villa með öllu tilheyrandi. Nú þegar er boð komið í húsið og hljóðar það upp á tæplega níu milljónir dollara.

Hér að neðan má sjá myndband frá fasteignasölunni sem sér um að selja eignina og má sjá þar hversu ótrúlega glæsileg hún er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×