Lífið

Calvin Harris hótar lögsóknum vegna frétta um sambandsslit hans og Taylor Swift

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Taylor Swift og Calvin Harris.
Taylor Swift og Calvin Harris. vísir/getty
Tónlistarmaðurinn Calvin Harris bragst ókvæða við í gær vegna frétta þess efnis að hann og söngkonan Taylor Swift væru hætt saman. Hótaði hann að lögsækja þá miðla fyrir meiðyrði sem greint hefðu frá sambandsslitunum.

Slúðurvefsíðan Radar Online greindi frá því að Swift hefði slitið sambandinu við Harris eftir að hann hafði verið myndaður þar sem hann kom út af tælenskri nuddstofu, að því er fram kemur á vef Independent.

Harris var hins vegar fljótur að svara fyrir sig auk þess sem talskona Swift, Tree Paine, svaraði því til að ekkert væri hæft í fréttaflutningnum.

Swift og Harris, sem bæði njóta mikillar velgengni sem tónlistarmenn, opinberuðu samband sitt í maí síðastliðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×