Glamour

Caitlyn Jenner í nýjustu herferð H&M

Ritstjórn skrifar
Caitlyn tekur sig vel út í íþróttafatnaði frá H&M.
Caitlyn tekur sig vel út í íþróttafatnaði frá H&M. mynd/youtube
Caitlyn Jenner er nýjasta andlit íþróttalínu sænska fatarisans H&M. Hún tilkynnti þetta nýjasta fyrirsætustarf í mars síðastliðnum en núna má loksins sjá afraksturinn hér neðst í fréttinni. Caitlyn fetar í fótspor stjarna á borð við Katy Perry, Beyoncé og sinnar eigin dóttur, Kendall Jenner. 

Auglýsingaherferðin einblínir á íþróttir, ólympíuleikana og fjölbreytni en það er ný stefna sem H&M hefur tekið í auglýsingum sínum seinasta árið og fengið mikið lof fyrir. 

Caitlyn hefur verið hægt og rólega að koma sér fyrir í tísku og förðunar heiminum en til dæmis mætti á tískuvikuna í New York fyrr á árinu ásamt því að gefa út sinn eigin varalit í samstarfi við MAC sem heitir Finally Free. 






×