Glamour

Caitlyn Jenner andlit H&M

Ritstjórn skrifar
Caitlyn Jenner
Caitlyn Jenner
Caitlyn Jenner er nýjasta andlit og fyrirsæta sænska risans H&M. Birti hún fréttirnar á twitter síðu sinni og staðfesti H&M fréttina á sinni síðu skömmu síðar.

Hún mun auglýsa íþróttamerki þeirra, H&M Sport og segir í tilkynningunni að hún hafi verið valin þar vegna íþróttaafreka sinna.

Jenner var afreksmaður í íþróttum á árum áður, þá þekkt sem Bruce Jenner, en nú eru liðrnir níu mánuðir síðan hún fór að lifa sem Caitlyn Jenner. 












×