Glamour

Caitlyn gefur út nýja og stærri línu fyrir MAC

Ritstjórn skrifar
Varalitur Caitlyn seldist strax upp þegar hann fór á sölu í fyrra.
Varalitur Caitlyn seldist strax upp þegar hann fór á sölu í fyrra. Mynd/Skjáskot
Í febrúar á seinasta ári gaf MAC út varalit í samstarfi við Caitlyn Jenner sem seldist upp um leið. Allur ágóðinn á sölunni rann til styrktar baráttunni við HIV og Aids. Alls söfnuðust 1.3 milljón dollara sem er alveg hreint ótrúleg upphæð. 

Í kjölfar þessara miklu vinsælda hafa Jenner og MAC ákveðið að hefja aftur samstarf en að þessu sinni verður vöruúrvalið talsvert betra. Núna verða 15 vörur til boða sem hannað voru af Caitlyn og MAC. 

Línan fer í sölu í MAC verslunum í þessum mánuði. 

Línan í heild sinni.





×