Erlent

Café Pútín opnar í Serbíu

Atli Ísleifsson skrifar
Rússlandsforseti á sér aðdáendur víða.
Rússlandsforseti á sér aðdáendur víða. Vísir/AP
Serbískur veitingamaður hefur ákveðið að nefna kaffihús sitt í Novi Sad í höfuðið á Vladimír Pútín Rússlandsforseta.

Pútín hefur ef til vill ekki unnið sér inn marga stuðningsmenn á Vesturlöndum að undanförnu, en veitingamaðurinn er mikill aðdáandi forsetans og mun opna kaffihúsið í næstu viku.

Radivoj Miljanic segir marga borgarbúa virða framgöngu Pútíns og segist ekki sjá neitt athugavert við nafngiftina. Á vef Moscow Times má sjá mynd af kaffihúsinu og nýju merki þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×