Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir vináttulandsleikinn gegn Svíum í kvöld.
Rúrik Gíslason getur spilað þrátt fyrir smávægileg meiðsli og þeir Ari Freyr Skúlason og Helgi Valur Daníelsson koma inn í liðið frá síðasta leik.
Byrjunarliðið:
Markvörður - Hannes Þór Halldórsson
Hægri bakvörður - Hallgrímur Jónasson
Vinstri bakvörður - Ari Freyr Skúlason
Miðverðir - Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson
Hægri kantur - Rúrik Gíslason
Vinstri kantur - Gylfi Þór Sigurðsson
Miðtengiliðir - Aron Einar Gunnarsson (fyrirliði) og Helgi Valur Daníelsson
Framherjar - Birkir Bjarnason og Kolbeinn Sigþórsson