Fótbolti

Byrjunarlið Íslands gegn Lettlandi | Alfreð og Emil koma inn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Alfreð fær tækifærið í byrjunarliðinu í dag.
Alfreð fær tækifærið í byrjunarliðinu í dag. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason tekur sæti Jóns Daða Böðvarssonar í fremstu víglínu við hlið Kolbeins Sigþórssonar í leik Íslands og Lettlands sem hefst klukkan 16:00 á Laugardalsvelli.

Jón Daði verður ekki með íslenska liðinu í dag vegna meiðsla en þetta er í fyrsta sinn sem Alfreð fær sæti í byrjunarliði íslenska liðsins í þessari undankeppni.

Þá tekur Emil Hallfreðsson sæti Arons Einars Gunnarssonar á miðri miðjunni við hlið Gylfa Þórs Sigurðssonar en fyrirliðinn Aron Einar tekur út leikbann í dag.

Byrjunarlið Íslands í dag er eftirfarandi.

Markvörður: Hannes Þór Halldórsson

Hægri bakvörður: Birkir Már Sævarsson

Miðverðir: Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson

Vinstri bakvörður: Ari Freyr Skúlason

Hægri kantmaður: Birkir Bjarnason

Miðja: Gylfi Þór Sigurðsson og Emil Hallfreðsson

Vinstri kantmaður: Jóhann Berg Guðmundsson

Framherjar: Alfreð Finnbogason og Kolbeinn Sigþórsson, fyrirliði.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×