Handbolti

Byrjar ekki vel hjá Refunum hans Dags

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ekki góð byrjun hjá Degi
Ekki góð byrjun hjá Degi vísir/getty
Dagur Sigurðsson sá lærisveina sína í Füchse Berlin tapa fyrir Göppingen í fyrsta leik liðsins í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag 29-27.

Dagur er nýráðinn þjálfari þýska landsliðsins í handbola en hann mun þjálfa Refina frá Berlin samhliða landsliðinu út þessa leiktíð.

Sigurbergur Sveinsson skoraði tvö mörk fyrir Erlangen sem tapaði með fimm marka mun 30-25 fyrir Lübbecke á sama tíma. Sigurbergur gekk til liðs við nýliðana í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×