Fótbolti

Byrjað að selja Suárez-treyjur á Nývangi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Menn gera Suárez-treyjurnar klárar.
Menn gera Suárez-treyjurnar klárar. mynd/skjáskot
Yfirmenn Barcelona-búðarinnar á Nývangi í Katalóníu vita annaðhvort meira en við hin eða eru bara nokkuð öruggir um að Börsungar gangi frá kaupum á Luis Suárez á næstu dögum.

Byrjað er að selja Suárez-treyjur á Nývangi með númerið níu á bakinu, en það hefur verið númer Sílemannsins AlexisSánchez. Það virðist nokkuð öruggt að hann sé á leið frá Barcelona til Arsenal.

Knattspyrnuvefurinn Goal.com heldur greinir frá því í dag að Barcelona og Liverpool hafi komist að samkomulagi um 70 milljóna punda kaupverð og félagaskiptin verði kláruð á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×