Viðskipti erlent

Byrjað að flytja inn í One World Trade Center

Atli Ísleifsson skrifar
Byggingin er 104 hæðir, 541 metrar og þar með orðin sú hæsta í Bandaríkjunum.
Byggingin er 104 hæðir, 541 metrar og þar með orðin sú hæsta í Bandaríkjunum. Vísir/AFP
Starfsemi er nú hafin í One World Trade Center í New York, rúmum þrettán árum eftir að Tvíburaturnarnir hrundu í hryðjuverkaárásunum 11. september 2001.

Um 170 starfsmenn útgáfufélagsins Condé Nast munu flytja inn í bygginguna í vikunni en félagið hefur tekið fimm hæðir á leigu. Búist er við að um 3.000 manns munu hefja störf í byggingunni á næsta ári.

Fjölmörg fyrirtæki hafa tekið hæðir á leigu í húsinu, þar á meðal auglýsingastofan Kids Creative og China Center, auk þess að eitthvað verður um skrifstofur á vegum hins opinbera.

Í frétt BBC kemur fram að áætlaður kostnaður við byggingu sé nú metinn um 3,8 milljarðar Bandaríkjadala, eða um 470 milljarðar króna, en átta ár hefur tekið að reisa hana.

„Útlínur New York-borgar eru aftur heilar,“ segir Patrick Foye hjá hafnaryfirvöldum borgarinnar sem eiga lóðina, en Foye hefur lýst byggingunni sem „þeirri öruggustu í Bandaríkjunum“.

Byggingin er 104 hæðir, 541 metrar og þar með orðin sú hæsta í Bandaríkjunum. Á lóðinni verður einnig að finna minnisvarða um Tvíburaturnana og safn. Þá er ráðgert að opna sérstakan útsýnispall fyrir almenning þegar fram í sækir.

Hér fyrir neðan má sjá þátt frá því í vor um byggingu turnsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×