Skoðun

Byggjum réttlátt þjóðfélag

Sóley Tómasdóttir skrifar
Ársreikningur Reykjavíkurborgar var lagður fram í vikunni. Þótt rekstrarniðurstaða samstæðunnar hafi komið ljómandi vel út var niðurstaða A-hlutans neikvæð um 2,8 milljarða króna. Niðurstaðan á sér margar og misflóknar skýringar sem ekki verða raktar hér en að sjálfsögðu verðum við að skoða færar leiðir til aukins aðhalds í framhaldinu.

Þótt niðurstaðan sé ekkert sérstakt fagnaðarefni var árið 2014 gott fyrir margra hluta sakir. Hluti framúrkeyrslunnar er auðveldlega réttlætanlegur og jafnvel fagnaðarefni á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks, enda hækkuðu laun borgarstarfsfólks umtalsvert á árinu. Hækkun launa og lífeyrisskuldbindinga skýra um 2 milljarða af neikvæðri rekstrarniðurstöðu borgarinnar.

Bætt lífskjör

Aukinn launakostnaður borgarinnar á síðasta ári var sanngjarn. Leik- og grunnskólakennarar fengu sjálfsagða launaleiðréttingu og starfsmat borgarinnar var endurskoðað með sanngirni að leiðarljósi. Í kjölfarið fengu meðal annars þroskaþjálfar, bókasafnsfræðingar og félagsráðgjafar umtalsverðar og löngu tímabærar kjarabætur.

Árið 2014 hófst jafnframt vinna við tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar, styttingu vinnuvikunnar án launaskerðingar. Tveir starfsstaðir borgarinnar taka þátt í verkefninu sem leiðir vonandi til bættra lífsgæða þeirra sem taka þátt í verkefninu, minni streitu og aukins frítíma, auk þess sem það ætti að stuðla að jafnari ábyrgð karla og kvenna á heimilum og þar með jafnari tækifærum á vinnumarkaði.

Fyrirsjáanlegar tilraunir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks í kjölfar ársreikningsins til að styrkja mýtuna um fjármálaóreiðu vinstriflokkanna ganga auðvitað ekki upp. Reynslan hefur ítrekað sýnt að jöfnuður og samfélagsleg ábyrgð er bæði hagkvæmari og farsælli en markaðsvæðing og einstaklingshyggja. Það væri óskandi að ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks horfðist í augu við það nú þegar verkföll eru hafin og fleiri blasa við.

Krafan um 300 þúsund króna lágmarkslaun og að fólk geti lifað sómasamlegu lífi af dagvinnulaunum er sanngjörn. Hún er krafa um réttlátt samfélag þar sem græðgi atvinnurekenda víkur fyrir hagsmunum heildarinnar. Að þessu sögðu óska ég verkalýðshreyfingunni velfarnaðar í samningunum fram undan og okkur öllum til hamingju með baráttudag verkalýðsins!




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×