Viðskipti innlent

Byggja upp 4G kerfi um landið á 18 mánuðum

Samúel Karl Ólason skrifar
Hér má sjá hvernig 4G kerfið mun líta út.
Hér má sjá hvernig 4G kerfið mun líta út.
Síminn stefnir á að byggja upp langdrægan 4G hring í kringum landið á næstu 18 mánuðum. Með því vill fyrirtækið skapa öflugra netsamband fyrir sjómenn. Í tilkynningu frá Símanum segir að 3G sjósambandið sé nær óslitið um strandlengjuna og hafi breytt fjarskiptum sjómanna svo um muni.

„Viðskiptavinir með sjósamband hjá Símanum sitja einir að 3G langdrægu kerfi fyrirtækisins,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans.

„Við hjá Símanum vitum að fjarskipti eru eitt lykilatriða þess að stunda hátækniveiðar og vinnslu. Með 4G verður netsambandið enn betra. Það gefur ekki aðeins tækifæri í rekstri útgerðarfélaga heldur getur bætt lífsgæði sjómanna frekar. Hásetar hafa til dæmis getað stundað fjarnám um borð í skipum vegna síbatnandi fjarskipta.“

Fyrstur á dagskrá er 4G sendir á Bolafjalli á Vestfjörðum. Síðan er stefnan sett á að byggja jafnt og þétt upp þar til takmarki Símans er náð.

Í tilkynningunni segir að Síminn hafi í rúmt ár unnið að því að byggja 4G kerfið upp og það nái nú til 82,5 prósenta landsmanna. Nú síðast voru settir upp sendar í Þorlákshöfn og á Húsavík. Allir 4G sendar Símans ná nú 150 Mbps hraða, sem er ríflega þrefalt meiri hraði en sá mesti á 3G.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×