Innlent

Býður sig fram til ritara Framsóknar en lýsir hvorki yfir stuðningi við Sigmund Davíð né Sigurð Inga

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jón Björn Hákonarson forseti Fjarðabyggðar.
Jón Björn Hákonarson forseti Fjarðabyggðar.
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og oddviti Framsóknarmanna í Fjarðabyggð hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti ritara Framsóknarflokksins á flokksþinginu sem fram fer um næstu helgi. Hann gefur ekki upp hvern hann styður í formannskjöri flokksins.

Mikil spenna er fyrir flokksþing Framsóknar sem fram fer í Reykjavík en þar berjast þeir um formannsembættið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins og Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og varaformaður Framsóknar.

Þá hefur Eygló Harðardóttir félags-og húsnæðismálaráðherra og ritari flokksins gefið það út að hún muni sækjast eftir varaformannsembættinu verði skipt um formann í flokknum. Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra hefur lýst yfir stuðningi við Sigmund Davíð í formannskjörinu og er enn að íhuga hvort hún bjóði sig fram til varaformanns.

Í samtali við Vísi vill Jón Björn ekki gefa það upp hvort hann styðji Sigmund Davíð eða Sigurð Inga til formennsku í flokknum.

„Nei. Núna held ég að það sé bara rétt að fólkið í Framsóknarflokknum fái að kjósa á flokksþinginu um þá og mig og aðra sem eru að bjóða sig fram. Það er mikið af öflugu fólki í framboði og ég held að það sé kominn tími til kominn að flokksmenn fái andrými til að taka afstöðu til þeirra og kjósa eftir sinni bestu samvisku og sannfæringu,“ segir Jón Björn.

Hann segir flokksþingið leggjast vel í sig og kveðst trúa því og treysta að Framsóknarmenn kjósi sér forystu, uni þeim úrslitum og mæti svo samhentir til kosninga.

„Auðvitað er mikil barátta og það er eðlilegt en ég held að það hljóti að vera að þegar því er lokið þá göngum við samhent í kosningabaráttuna.“

Jón Björn hefur verið forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð frá árinu 2010 auk þess sem hann hefur setið í ýmsum nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins og á samstarfsvettvangi sveitarfélaganna á Austurlandi í gegnum tíðina.


Tengdar fréttir

Gunnar segir grafið undan formanninum

Gunnar Bragi Sveinsson styður Sigmund Davíð og Lilju Alfreðsdóttur til að leiða flokkinn í komandi kosningabaráttu. Segir hann varaformann og ritara flokksins reyna að grafa undan formanni og augljósar klofningslínur hafa myndast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×