Fótbolti

Býður Chelsea Courtios í skiptum við James?

Anton Ingi Leifsson skrifar
James í leik með Real.
James í leik með Real. vísir/getty
Chelsea hefur mikin áhuga á að klófesta hinn kólumbíska James Rodriguez frá Real Madrid og gæti boðið Thibaut Courtois sem skipti fyrir James, samkvæmt AS.

Jorge Mendes, umboðsmaður James, hefur hins vegar gefið út að James vilji komast burt frá Real í janúar, en hann hefur ekki verið í náðinni hjá Zinedine Zidane, þjálfara spænska stórliðsins.

Rodriguez gekk í raðir Real 2014 og er með samning til 2020, en hann hefur einungis spilað átta sinnum í deildinni á tímabilinu og er sagður vilja komast burt.

Chelsea hefur mikin áhuga á að ná í Kólumbíu-manninn og segir sagan að þeir hafi hug að bjóða Courtois á móti næsta sumar, en það er spurning hvort James finni sér ekki nýtt lið í janúar.

Samkvæmt Marca gæti Pepe einnig verið á leið burt frá Real, en samningur hans rennur út næsta sumar. Hann hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×