Viðskipti innlent

Býðst til að hreinsa bílastæði Elko fyrir sjónvarpi

Sæunn Gísladóttir skrifar
Benedikt Kristinn Briem
Benedikt Kristinn Briem Vísir/Facebook
Benedikt Kristinn Briem, 12 ára sem langar í sjónvarp þar sem sex ára litli bróðir hans er að einoka það hefur tekið málin í sínar eigin hendur og biðlað til Elko. Benedikt skrifaði eftirfarandi á Facebook síðu Elko:

„hæ elko ég er 12 ára. ég verð að kaupa mér sjónvarp því að litli bóðir minn einangrar sjónvarpið. ég er búin að finna B-vörusjónvarp sem kostar 69995kr sem kostaði 99995kr ég á bara 40000kr. gætuð þið lækað verðið frá 69995kr=40000kr ég er tilbúinn að vinna fyrir ykkur t.d. hreinsa bílastæðið.“

Þetta hefur vakið mikla athygli og fengið yfir 2500 læk. Margir hafa boðist til að leggja Benedikti lið en enn fleiri hafa skorað á Elko að hjálpa honum. 

Draumur að fá stóran flatskjá

Benedikt segist aldrei hafa skrifað svona áður og segist ekki hafa átt von á þessum viðbrögðum og veit eiginlega ekki hvernig hann á að bregðast við. Benedikt hefur gaman af að horfa á sjónvarpið og spilar líka tölvuleiki. Hann  langar í flatskjá sem sé helst ekki of lítill. Aðspurður segist hann ekki endilega ætla að gera svona aftur.

Munu ekki lækka verðið

Benedikt hefur þegar þetta er skrifað ennþá ekki heyrt frá Elko. Upplýsingafulltrúi Elko segir í samtali við Vísi að þeir muni ekki koma til með að lækka verðið, hins vegar muni þeir reyna að finna sjónvarp fyrir Benedikt nálægt verðinu sem hann vill.

„Okkur fannst þetta afskaplega skemmtilegur þráður og gaman að lesa þessar hugleiðingar hans. Við höfum ákveðið að hafa samband við hann og foreldra hans og bjóða þeim hérna í heimsókn og skoða úrvalið hjá okkur. Í sjálfu sér erum við ekki að lækka verðið á tækjum þó við fáum skemmtileg og falleg bréf. Við erum bara að benda á aðrar lausnir og seljum hverjum sem er á sömu kjörum. Við erum með margar gerðir af sjónvörpum og sumt er á afslætti eða gömul sýnishorn. Hugsanlega er hægt að finna eitthvað nálægt þessu verði. Aðal atriðið er bara að fá hann á svæðið og hjálpa honum að finna sjónvarp með leyfi foreldranna.“

Hér að neðan má sjá Facebook-færslu Benedikts og nokkur tíst um færsluna sem vakið hefur svo mikla athygli.

hæ elko ég er 12 ára. ég verð að kaupa mér sjónvarp því að litli bóðir minn einangrar sjónvarpið. ég er búin að finna...

Posted by Benedikt Kristinn Briem on Wednesday, 2 September 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×