Lífið samstarf

Buxnalaus í Jack & Jones

Yfir hundrað hressir strákar, stelpur og karlmenn á nærbuxunum mættu í Jack & Jones Kringlunni í þeim tilgangi að fá gallabuxur og glæsilegan kaupauka frá L´Oréal men föstudaginn 24. júní síðastliðinn.

Það var fullt út úr dyrum og færri komust að en vildu. Fyrstu hundrað viðskiptavininrnir fengu gallabuxur á 2.000 krónur en skilyrðið var að mæta buxnalaus í verslunina í Kringlunni klukkan 17:00.

Myndir frá þessum stórskemmtilega degi má sjá hér fyrir ofan og myndband fyrir neðan.

Þessir hikuðu ekki við að taka þátt í gleðinni.
Dj Atli var á staðnum og hélt uppi stuðinu og var Pepsí í boði fyrir gesti og gangandi.

Það myndaðist myndarleg biðröð fyrir framan verslunina um klukkan 16:30 en engum var hleypt inn fyrr en á slaginu 17:00 og stóðu því strákarnir á nærbuxunum fyrir utan verslunina, sumir hverjir í 30 mínútur. 

Buxurnar voru fjlótar að rjúka út enda ekki leiðinlegt að fá flottar gallabuxur að eigin vali frá Jack & Jones, Deo Spray frá L´Oréal og sokka frá Jack & Jones fyrir 2000 krónur.

Stemningin var meiriháttar og viðskiptavinirnir almennt mjög ánægðir með þetta uppátæki enda á Jack & Jones dyggan viðskiptavinahóp þegar kemur að gallabuxum enda er verslunin búin að vera leiðandi í sölu á gallabuxum hér á landi í mörg ár.

Nú bíðum við spennt eftir næsta uppátæki verslunarinnar og ekki ólíklegt að það verði stutt þar starfsfólk Jack & Jones bregði á leik með viðskiptavinum á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×