Golf

Búumst við enn betri árangri hjá Ólafíu í Ástralíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
mynd/gsí
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur í kvöld keppni á sínu öðru LPGA-móti er hún keppir á ISPS Handa-mótinu í Adelaide í Ástralíu. Raunar verður hún ræst út á fimmtudagsmorgni að staðartíma en klukkan 20.41 að íslenskum tíma í kvöld.

„Hún er svolítið þreytt og tekur því rólega fyrstu tvo dagana,“ sagði Derrick Moore, þjálfari hennar á Íslandi, en Ólafía Þórunn kom til Ástralíu í fyrradag.

Þrjár vikur eru síðan hún keppti á sínu fyrsta móti á LPGA-mótaröðinni bandarísku, Pure Silk-mótinu á Bahamaeyjum, en þar komst hún örugglega í gegnum niðurskurðinn og hafnaði í 69. sæti eftir að hafa fatast flugið á þriðja keppnisdegi.

Ólafía talaði um eftir mótið að hafa fundið fyrir þreytu enda var hún enn að jafna sig eftir kjálka­aðgerð og gat ekki æft af fullum krafti í aðdraganda mótsins.

„Hún hefur styrkst mikið og vill helst ekki tala mikið um aðgerðina núna,“ sagði Derrick í léttum dúr. „Hún var ánægð með mótið á Bahama en fann vissulega fyrir þreytu á þriðja hring og missti aðeins einbeitinguna. En hún er orðin sterkari í dag.“

Ferðalagið hefur haft sitt að segja og ekki síst tímamismunurinn, sem er tíu og hálf klukkustund miðað við Ísland. „Þetta var langt ferðalag en hún verður fljót að jafna sig á því. Það hefur allt gengið vel í aðdraganda mótsins og við búumst við enn betri árangri núna en á Bahama,“ sagði Derrick enn fremur.

Heildarverðlaunafé mótsins er 1,3 milljónir Bandaríkjadala eða jafnvirði 145 milljóna króna. Allir þeir sem komast í gegnum niðurskurðinn vinna sér inn verðlaunafé.

Sýnt verður beint frá mótinu á Golfstöðinni en alþjóðleg útsending frá mótinu hefst ekki fyrr en klukkan 04.00 í nótt. Sýnt verður frá mótinu alla fjóra keppnisdagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×