Íslenski boltinn

Búumst við ævintýralegri stemningu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjarnan og ítalska stórliðið Inter mætast næsta miðvikudag í Evrópudeildinni og verður leikið á Laugardalsvelli. Það er þegar uppselt á leikinn og von á einstakri stemningu í Dalnum á miðvikudagskvöldið.

Valtýr Björn Valtýsson fjallaði um Stjörnuliðið í kvöldfréttum Stöðvar tvö og ræddi bæði við rekstrarstjórann og heitasta framherja liðsins.

Lið Internazionale hefur unnið átján Ítalíumeistara ásamt því að sigra í Meistaradeildinni þrisvar sinnum, síðast árið 2010.

Í leikmannahópi félagsins eru sjö leikmenn frá Argentínu, sex ítalskir leikmenn, og  fjórir Brasilíumenn svo eitthvað sé nefnt.

Internazionale varð í fimmta sæti ítölsku deildarinnar á síðustu leiktíð og þjálfari liðsins er Walter Mazzarri en hann tók við liðinu í fyrra eftir að hafa verið þjálfari Napoli í fjögur ár.

Stjarnan er í fyrsta sinn í Evrópukeppninni og liðið hefur slegið út Lech Poznan frá Póllandi, skoska liðið Motherwell og Bangor City frá Wales. Stjarnan er enn taplaus í Evrópudeildinni og markatalan er 14-4. Það seldist upp á leik Stjörnunnar og Inter á mettíma.

„Ég held að það hafi selst upp hraðar en á Króatíuleikinn. Við byrjuðum okkar miðasölu klukkan tíu en ekki klukkan fjögur um nóttina," sagði Viktor Ingi Olsen, rekstrarstjóri Stjörnunnar, í léttum tón í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í kvöldfréttum Stöðvar tvö.

„Við búumst við ævintýralegri stemningu. Ef að það er eitthvað stuðningsmannalið á landinu sem ég treysti til að fylla Laugardalsvöllinn af stemningu þá er það Silfurskeiðin," sagði Viktor Ingi. Það verða samt fáir Ítalir á leiknum?

„Við höfum aðeins fundið fyrir því á þessum ferðalögum okkar að það er erfitt að komast til Íslands og út. Ferðalagið er dýrt og erfitt en Ítalirnir verða um 60 fyrir utan þá sem ferðast með klúbbnum sem eru um hundrað manns," sagði Viktor Ingi.

„Við Stjörnumenn finnum fyrir mikilli samkennd með Íslendinga og íslenskra knattspyrnuunnenda og þetta er með allra stærsta verkefni sem íslenskt knattspyrnulið hefur þurft að takast á við," sagði Viktor.

Arnar Már Björgvinsson og félagar mæta þarna einu af stóru liðunum í Evrópu, með menn einsog Nemanja Vidic og Ranocchia í vörninni.

„Ég ætla að klárlega að reyna að njóta þess að spila en auðvitað reyna að stríða þeim eitthvað aðeins. Það eru stór nöfn í þessu liði en það hafa líka oft verið stærri nöfn. Við erum að fara að mæta frábæru liði," sagði Arnar Már Björgvinsson.

„Möguleikarnir okkar eru fínir ef við spiluðum svipað og við gerðum á móti Poznan. Það er allt hægt í fótbolta og við höfum bullandi trú á þessu. Þjálfarnir okkar eru búnir að berja því inn í hausinn okkar að þetta sé hægt," sagði Arnar Már.

„Ég er búinn að halda með Inter síðan að ég man eftir mér og það yrði draumur að skora og þá sérstaklega að skora á San Siro," sagði Arnar Már en það smá allt innslagið hans Valtýs Bjarnar með því að smella á myndbandið hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Draumadráttur fyrir Stjörnumenn

Lið Internazionale frá Mílanó verða fyrstu Meistaradeildarsigurvegararnir sem leika á íslenskri grundu.

Stjörnumenn halda áfram að semja við ungu strákana sína

Stjörnumenn hafa mikla trú á árganginum sem skilaði félaginu Íslandsmeistaratitli í 2. flokki karla í fótbolta í fyrra og Þorri Geir Rúnarsson er fjórði leikmaðurinn úr þessum árangi sem fær nýjan samning.

Stjarnan mætir Inter

Stjarnan mætir ítalska stórveldinu Inter í undankeppni Evrópudeildarinnar en dregið var í hádeginu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×