Bush og Kerry hnífjafnir 31. ágúst 2004 00:01
Bush Bandaríkjaforseti hefur étið upp forskotið sem John Kerry var með í skoðanakönnunum. Fylgi frambjóðendanna tveggja er nú hnífjafnt. Fram eftir sumri naut John Kerry forskots á Bush í könnunum, bæði hvað almennar vinsældir snerti og svo í nokkrum lykilmálaflokkum. En skjótt skipast veður í lofti. Bush forseti hefur nú náð forskoti á ný hvað varðar stríðið gegn hryðjuverkum, framgang mála í Írak, og svo í efnahagsmálum. Hann er einnig talinn heiðarlegri og trúverðugri en Kerry. Kerry hefur að sama skapi lækkað í áliti hjá kjósendum; áhugi á framboði hans hefur minnkað um 16 prósent og vinsældir hans hafa lækkað um átta prósent. Fylgi forsetaframbjóðendanna er hnífjafnt í könnunum, nú þegar tveir mánuðir eru til kosninga. Samkvæmt nýrri könnun Washington Post og fréttastofu ABC njóta bæði Bush og Kerry 48 prósenta fylgis. Bush er þó ekki í sérstaklega góðum málum þrátt fyrir þessi tíðindi. 52 prósent eru ósátt við frammistöðu hans í Hvíta húsinu, 54 prósent ósátt við gang mála í Bandaríkjunum og 46 prósent eru á því að þau séu verr sett nú en þegar Bush tók við embætti. Demókratar voru með skýringar á reiðum höndum í morgun: þeir segja ófrægingarherferð fyrrverandi Víetnamhermanna á hendur Kerry hafa valdið skaða, og að ólympíuleikarnir í Aþenu hafi beint athygli almennings frá Kerry, stríðinu í Írak og bágu efnahagsástandi.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Sjá meira