Erlent

Bush eldri á spítala um jólin

Þórður Ingi Jónsson skrifar
George Bush eldri ásamt eiginkonu sinni, Barböru, árið 2012.
George Bush eldri ásamt eiginkonu sinni, Barböru, árið 2012. mynd/ap
Fyrrverandi Bandaríkjaforseti, George Bush eldri, varði jólunum á spítala í Houston í Texas eftir að hann hafði komist í andnauð. Talsmaður Bush segir þó að hann hafi átt „frábæran dag“ og að hann væri „í góðu stuði“.

Á spítalanum fékk Bush heimsókn frá eiginkonu sinni, Barböru, og fleiri fjölskyldumeðlimum.

Jean Becker, sem var herráðsforingi undir stjórn Bush á sínum tíma, segir að Bush ætti að vera orðinn hraustur eftir nokkra daga. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×