Innlent

Bullandi frjósemi í Fagradal í Mýrdal

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Fallegur litur á lömbum vekur alltaf athygli en á bænum Fagradal í Mýrdal fæddust nýlega þrílembingar með mikla litadýrð, meðal annars mögótt gimbur. Á bænum er frjósemi með allra besta móti því þrjátíu kindur eru þrílembdar og tvær eru með fjögur lömb.

Þau Jónas Erlendsson og Ragnhildur Jónsdóttur búa í Fagradal með um þrjú hundruð fjár. Sauðburði er að ljúka en þau hafa fengið vel yfir 500 lömb. Þau taka af og til á móti gestum sem langar að skoða féð þeirra sem er mjög fallegt. Flestar kindurnar eru komnar út á tún með lömbin sín. Ærin Blæja vekur sérstaka athygli en hún bar þremur litskrúðugum lömbum.

„Hérna erum við með þrjú lömb sem eru tveggja daga gömul. Ætli ég sé ekki búin að fá einar þrjátíu þrílembur í vor og þetta er sú síðasta af þeim hópi. Lömbin eru svarstjörnótt, bíldótt og mögótt en við tölum um skaftfellskt mögótt. Þegar það er flekkóttur hrútur er mjög líklegt að það komi flekkótt, sérstaklega undan mögóttri rollu eins og Blæju“, segir Jónas.

Jónas setur GPS-staðsetningartæki á eina kind hjá sér þannig að hann geti gengið að henni í haust.

„Þá get ég fylgst með henni allt sumarið og fram á haust“.

Ragnhildur gefur öllum kindunum á bænum nöfn og þekkir þær allar með nafni.

„Þær eru allar sitt með hverjum svip eins og við. Sumar eru stórhyrndar, sumar smáhyrndar, aðrar afturhyrndar, sumar snjóhvítar, aðrar gular og allskonar önnur litabrigði“, segir Ragnhildur. Þegar hún var beðin að nefna nokkur nöfn á kindunum nefndi hún Busku, Krímu, Grímu, Reim, Nellý, Öræfagola og Þylja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×