Innlent

Búist við hvassviðri á landinu suðaustanverðu

Atli Ísleifsson skrifar
Vindstrengir á þessu svæði eru varasamir fyrir ökutæki sem taki á sig mikinn vind.
Vindstrengir á þessu svæði eru varasamir fyrir ökutæki sem taki á sig mikinn vind. Vísir/Andri marinó
Veðurstofan býst við hvassri austan- og norðaustanátt fram á kvöld frá syðsta hluta landsins og austur að sunnanverðum Austfjörðum.

Á vef Veðurstofunnar segir að vindstrengir á þessu svæði séu varasamir fyrir ökutæki sem taki á sig mikinn vind, til að mynda húsbíla eða hjólhýsi.

Veðurstofan býst einnig við talsverðri rigningu með köflum á Suðausturlandi og Austfjörðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×