Innlent

Búist við frekari seinkunum á Keflavíkurflugvelli í dag

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Yfirvinnubann flugumferðarstjóra hefur staðið yfir frá 6. apríl.
Yfirvinnubann flugumferðarstjóra hefur staðið yfir frá 6. apríl. vísir/gva
Unnið er að því að koma flugumferð í samt horf eftir að Keflavíkurflugvelli var lokað í gærkvöldi vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að búast megi við frekari seinkunum í dag.

„Það er möguleiki á einhverjum seinkunum á þessum ferðum sem urðu fyrir áhrifum af þessu yfirvinnubanni. Það er þétt dagskrá hjá þeim vélum en flugfélögin gera sitt besta til þess að ná upp réttri áætlun á sem stystum tíma,“ segir Guðni í samtali við Vísi.

Ekkert var lent á Keflavíkurflugvelli á milli klukkan níu í gærkvöldi og til klukkan sjö í morgun. Það hafði áhrif á um tuttugu og fjórar flugferðir um völlin en fyrsta vélin lenti klukkan sjö.

„Þetta hefur allt saman gengið rosalega vel. Strax eina mínútu yfir sjö fór allt á fullt þegar morgunvaktin kom og það hafa allir lagt á eitt að láta þetta ganga sem hraðast fyrir sig,“ útskýrir Guðni.

Tveimur ferðum flugfélagsins Air Berlin var aflýst vegna yfirvinnubannsins og flugvél frá Icelandair lenti á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi vegna þessa. Guðni segir það eflaust eiga eftir að taka einhvern tíma að koma öllu í samt lag. Alls eru 29 flugferðir á áætlun á Keflavíkurflugvelli á milli klukkan 7 og 8.30.

„Vélarnar eru að komast út núna ein af annarri. Þetta eru töluverðar seinkanir bæði inn á völlunn og frá og flugfélögin verða eflaust einhvern tíma að ná að leiðrétta þær. En það hefur gengið ótrúlega vel að afgreiða þennan mikla fjölda sem þarna er.“

Yfirvinnubann flugumferðarstjóra tók gildi 6. apríl síðastliðinn. Lítið hefur miðað í samningaviðræðum þeirra við Isavia og hafa þeir boðað til þjálfunarbanns frá og með 6. maí næstkomandi.


Tengdar fréttir

Veruleg röskun á flugi

Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra féll áætlunarflug um Keflavíkurflugvöll niður frá níu í gærkvöldi til sjö í morgun. Vilja kjarabætur umfram SALEK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×