Viðskipti innlent

Búist við frekari hækkunum á flugmiðum

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Flugmiðaverð hefur hækkað um 10 prósent.
Flugmiðaverð hefur hækkað um 10 prósent. Vísir/Stefán
Tíu prósenta hækkun hefur orðið á flugmiðaverði á milli mánaða í apríl og búist er við að verð á flugmiðum hækki enn meira á næstu vikum, samkvæmt nýrri verðkönnun flugleitarvefjarins Dohop.

Svo virðist sem flugverð sé að jafnast út, þó tíu prósenta hækkun sé á flugverði í heildina, því í könnuninni kemur fram að hæstu verðin séu að lækka, en þau lægstu að hækka.

Fyrir mánuði var hægt að komast til fjögurra borga fyrir um 35 þúsund krónur eða minna, en nú er lægsta meðalverðið 37 þúsund krónur, til Berlínar. Aftur á móti lækkar meðalverð á flugi til New York um rúmar 10 þúsund krónur; úr 95 þúsund krónum í 84 þúsund krónur.

Flugleitarvefurinn segir að á næstu vikum sé ódýrast að fara til Þýskalands en dýrast til Bandaríkjanna. Flug til Boston og New York kostar nú á milli 80 til 85 þúsund krónur að meðaltali, en flug til Dusseldorf er á 37 þúsund krónur að meðaltali.

Af þeim tuttugu borgum sem Dohop skoðaði í verðkönnuninni hækkar verð á flugi til fimmtán borga. Meðalhækkunin er þó ekki mikil en þegar allt er tekið saman má gera ráð fyrir að borga um fimm þúsund krónum meira fyrir flug nú en fyrir mánuði.

Dohop spáir enn frekari hækkunum á flugverði þegar líða tekur á sumarið, sérstaklega á flugi til Bandaríkjanna.

Dohop skoðaði í þessari könnun þrjár dagsetningar; sú fyrsta er eftir tvær vikur, önnur eftir fjórar vikur og þriðja eftir átta vikur. Í hverri viku eru allir sjö dagar skoðaðir með vikudvöl í huga og meðaltal hverrar viku er endanlegt verð fyrir það tímabil. Gert er ráð fyrir einum farþega sem flýgur báðar leiðir með eina ferðatösku og handfarangur, við gerð verðkönnunarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×