Búinn að verja víti sex sumur í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2012 08:00 Hannes Þór Halldórsson hefur varið þrjú víti í röð í Pepsi-deildinni.
Hannes Þór Halldórsson, markvörður Íslandsmeistara KR, var hetja sinna manna í 3. umferð Pepsi-deildar karla þegar hann varði víti frá Matt Garner í uppbótartíma og sá til þess að KR vann leikinn 3-2 og þar með sinn fyrsta deildarsigur í sumar. Þetta var langt frá því að vera fyrsta vítið sem Hannes nær að stoppa í efstu deild því hann var að verja vítaspyrnu sjötta tímabilið í röð. Hannes hefur nú alls varið 7 af 19 vítaspyrnum sem hann hefur reynt við í efstu deild þar af 3 af 5 sem hann hefur fengið á sig síðan hann skipti úr Fram yfir í KR. Hannes varði tvær vítaspyrnur síðasta sumar, þá fyrri á móti FH-ingnum Matthíasi Vilhjálmssyni í 7. umferð og þá seinni frá Framaranum Steven Lennon í 17. umferð. Að hann skyldi verja bæði vítin átti mikinn þátt í að KR fékk öll þrjú stigin líkt og í leiknum á þriðjudaginn. KR skoraði bæði mörkin sín á móti FH eftir að Hannes varði vítið og sömu sögu er að segja af Framleiknum sem KR vann 2-1. Bæði vítamörkin sem Hannes fékk á sig í fyrra komu í fyrstu sex umferðunum og þau voru bæði á útivelli. Hannes hefur því varið þrjú síðustu víti sem hann hefur reynt við í efstu deild og jafnframt allar þrjár vítaspyrnurnar sem hann hefur fengið á sig á KR-vellinum síðan hann gekk til liðs við Vesturbæjarliðið.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Fleiri fréttir Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings