Fótbolti

Búinn að skora jafn mörg mörk í þremur leikjum fyrir Nice og hann gerði allan sinn feril hjá Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vandræðagemsinn Mario Balotelli fer einkar vel af stað með Nice í Frakklandi.

Balotelli hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár og ekki gert mikið af viti inni á vellinum, og heldur ekki utan hans ef út í það er farið.

Balotelli fór á frjálsri sölu frá Liverpool í lok félagskiptagluggans og samdi við franska liðið Nice. Og þar virðist hann blómstra.

Balotelli skoraði tvívegis þegar Nice vann 4-0 stórsigur á toppliði Monaco í gær. Hann hefur því alls gert fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum fyrir Nice. Ekki amalegt byrjun það.

Til samanburðar skoraði Balotelli fjögur mörk í 28 leikjum með Liverpool allt tímabilið 2014-15.

Nice situr á toppi frönsku deildarinnar með 14 stig eftir fyrstu sex umferðirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×