Innlent

Búið að velja hópinn

Sólveig Ólafsdóttir
Sólveig Ólafsdóttir

Búið er að velja þær níu flóttamannafjölskyldur sem koma hingað til lands frá Kólumbíu í ár. Til stóð að hópurinn kæmi til landsins í sumar en komu fólksins seinkar fram á haustið. Sólveig Ólafsdóttir, yfirmaður upplýsingamála Rauða kross Íslands, segir að undirbúningur sé vel á veg kominn.



„Flóttamannanefnd félagsmálaráðuneytisins fór til Ekvador um miðjan júní en þar dvelja flóttamennirnir sem hafa flúið frá Kólumbíu. Þar voru tekin viðtöl við fólkið og valið hverjum hentaði best að koma hingað," segir Sólveig.



Hópurinn samanstendur af þrjátíu konum og börnum þeirra en konurnar hafa sætt kerfisbundnu ofbeldi í Kólumbíu. „Ofbeldið hefur fylgt sumum þessara kvenna til Ekvador og því er mikilvægt að finna þeim stað þar sem þær njóta persónulegrar verndar," segir Sólveig og bætir því við að hópi kólumbískra flóttamanna sem kom til Íslands árið 2005 hafi reitt vel af.



„Þær hafa aðlagast íslensku umhverfi vel og eru allar með vinnu. Það var meðal annars vegna þeirrar góðu reynslu sem ákveðið var að taka aftur á móti slíkum hópi," segir Sólveig.



Reykjavíkurborg tekur við flóttamönnunum og útvegar þeim húsnæði. Sólveig segir að sá undirbúningur sé vel á veg kominn og unnið sé að því nú að finna fólkinu stuðningsfjölskyldur á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×