Bíó og sjónvarp

Búið að ráða leikara fyrir íslenska kvikmynd sem fjallar um líkfundarmálið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá leikarana.
Hér má sjá leikarana.
Nú er búið að ráða leikara í íslenska kvikmynd sem fjallar um atburði sem gerðust hér á landi þegar lík fannst í sjónum árið 2004.  

Myndin ber nafnið Mihkel er nútímasaga  sem snýst um hörmuleg örlög manns sem var raunverulega til. Sagan byggir á atburðum sem gerðust árið 2004 á Íslandi, svokallað líkfundarmál. Sagan fjallar um Mihkel og Veru, kærustu hans, sem dreymir um að flytja frá Eistlandi til Íslands.

Óvæntir atburðir gerast sem hafa afdrifaríkar afleiðingar og enda með því að Mihkel er svikinn af sínum besta og elsta vini. Lík Litháans Vaidasar Juceviciusar fannst í höfninni í Neskaupsstað og fjallar myndin um atburðina í kringum það.

Tökur á Mihkel hefjast mánudaginn 14. nóvember og verður hún að mestu tekin upp í Reykjavík en einnig eru fjórir tökudagar á Austfjörðum. Myndin verður frumsýnd haustið 2017.

Aðalleikarar myndarinnar eru:Paaru Oja (Mihkel) og Kasper Velberg - (Igor), Atli Rafn Sigurðarson (Jóhann) og Tómas Lemarquis (Bóbó). Ari Alexander Ergis Magnússon er handritshöfundur kvikmyndarinnar og leikstýrir hann myndinni.

Framleiðendur Mihkel eru:Friðrik Þór Friðriksson, Kristinn Þórðarsson og Leifur B. Dagfinnsson hjá Truenorth. Meðframleiðendur eru Evelin Soosaar-Penttilä frá Eistlandi og Egil Ødegård frá Noregi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×